Heim.

Lífið er ekkert annað en orka.

Þá erum við hér saman komin enn á ný til þess að velta fyrir okkur hvernig við getum leyft okkur að lifa heilbrigðara lífi eins og þið orðið það, ég segi í meira jafnvægi við þá orku sem streymir í kringum okkur, þá orku sem gefur okkur lífið.

Vegna þess að lífið er ekkert annað en orka sem leikur í hringi hvar sem hún fer í hverju sem er, kærleiksorka sem hefur engin takmörk fyrir því sem hún getur gert, en um leið afskaplega hæversk vegna þess að hún þrengir sér hvergi inn nema henni sé boðið.

Síðan höfum við í heiminum það sem er kallað neikvæð orka, orka sem þrengir sér hvert sem er hvenær sem er bara ef hún hefur einhvern möguleika til þess, þannig vinnur lögmál alheimsins.

Vegna þess að það er öllum ljóst sem orkurnar hafa skoðað, að það er alltaf til skuggi þar sem til er ljós, neikvæðni þar sem til er jákvæðni, alltaf andstæðir pólar.

En mannkynið hefur í raun og veru alltaf gengið út frá því, að skugginn þurfti að vera á jarðneska vísu og neikvæðnin á mannlegan mælikvarða. Það er aftur á móti þar sem skekkjumörkin eru frá því sjónarhorni sem ég horfi á það.

Skuggi getur verið svo bjartur að mannfólkið fengi ofbirtu í augun aðeins ef ljósið sem býr hann til er sterkara, neikvæðni gæti verið það jákvæð að venjulegur maður í erli dagsins með bros á vör mundi undrast þá jákvæðni.

Þannig er með þau lögmál sem gilda í alheiminum, þú verður alltaf að skoða forsendurnar sem eru til staðar hverju sinni. Það þarf að gefa sjálfum sér frelsi að skilja að sú orkubirting sem maðurinn hefur verið að birta í gegnum árþúsundin er efniskennd í frekar lágri tíðni, þess vegna er skugginn svartur og ljósið fölt í gulum lit, ef að tíðnin hækkar í þessari orku þá verður ljósið skærara og skugginn verður gulfölur eins og dagsbirta jarðarinnar er í dag.

Hafið ávalt víðsýni til þess að búa til meiri jákvæðni þar sem jákvæðni ríkir og horfa á það að neikvæðni er hægt að setja jákvæða og þar með hefur hún mark sitt og er tilganglaus og þar með hækkar orkustig jarðar um eitt stig í viðbót og eitt stig af neikvæðni og skugga hefur verið upprætt og örlítið meiri birta ríkir dags daglega ekki bara í hjörtum mannanna heldur líka í orkuhjúp jarðarinnar, sem þar með hefur áhrif á þá dagsbirtu sem þið lifið í, þá dagsbirtu sem í kringum ykkur er.

Megi ljósið ríkja með ykkur, innra sem hið ytra.

Greifinn af Saint German.