Heim.

Sameiginlegur pistill Morya og Greifans af Saint German miðvikudaginn 10.apríl 2002.

Hér og nú er staður og stund til þess að byggja upp þá orku sem þarf til þess að fleyta starfinu áfram sem hér hefur nú þegar verið sett í gang.

Til þess að svo geti orðið þurfa þeir sem hér inni sitja og þeir sem fyrir utan sitja og maðurinn almennt að vinna svolítið með sjálfan sig og oft þá neikvæðni sem þeir hafa byggt innra með sér.

Því að nú er tími til að opna inn á það mikinn kærleik og ljós og til þess að þið öll getið tekið það ljós inn í gegnum ykkur og sent það frá ykkur þurfið þið öll að vera í jafnvægi líka, þið þurfið að vera hrein þó að þið sem hér inni sitjið séu það öll. En nú er ég líka að tala um manninn almennt hvar sem hann er hér á móðir jörðu, en þar sem hlutirnir þurfa að gerast hratt, ákveðið og hnitmiðað í miklu jafnvægi þarf ýmislegt að ganga á fyrst.

Spurning: þegar þið komið svona þrír í einu með svona setningu, er þá þessi orka send út miklu víðar en í gegnum það fólk sem er hér inni?

Að sjálfsögðu og í öllum þessum litum er allt það litróf sem maðurinn þarfnast og þarf að nota, því maðurinn þarf að nota þá orku sem á eftir að koma inn núna mjög fljótlega.

Það verður mikil hækkun í orku núna eftir þrjár vikur og til þess að raska ekki jafnvægi manna þarf að undirbúa þá vel og á ég þar við líkama mannsins fyrst og fremst, það verður mikil orkubirting sem kemur og þið getið líka skoðað umhverfi ykkar þá, því að þeir sem ekki hafa náð þessari orkuuppbyggingu líkamlega geta fundið fyrir óþægindum í stuttan tíma, þið getið séð þær breytingar þann óróa sem getur skapast í þjóðfélaginu í heild sinni.

En aldrei verður þetta sett inn öðruvísi að það geti aldrei valdið neinum skaða.

Ég bið ljósið um að vera með ykkur, vernda ykkur í miklu jafnvægi, þakka ég nú fyrir að fá að vera hérna með ykkur og njóta samveru ykkar. Morya.

Það sem ég vill segja ykkur hér í kvöld er fyrst og fremst að upp er að hefjast mikil samvinna þeirra sem eru að vinna saman, bæði farveganna og þeirra sem vinna með ljósið.

Hjá farvegunum á eftir að myndast mikil samstaða um það sem kemur í gegn, sem skilar sér fyrst og fremst sem fróðleik og leiðbeiningar til ykkar sem starfa með ljósinu og hvernig þið getið notað ljósið meira í ykkar vinnu, hvort sem þið kallið það heilun, miðlun eða í skrifuðu máli.

Allt á þetta eftir að breytast og á eftir að breytast á þann hátt sem ykkur ekki óraði fyrir, það á eftir að breytast á þann hátt sem til var ætlast og aldrei gerast hlutirnir að ástæðulausu, hingað til jarðarinnar er komin þannig orka að nú fara ýmsir hlutir að gerast, það fer að opnast mikið inn á skynjum mannanna gagnvart náttúrunni eins og fram hefur komið, gagnvart heilsu mannsins eins og líka fram hefur komið og ennfremur hvernig þið sem hér inni sitjið og þið sem komið hér á þessa fundi tengist hvert og eitt innbyrðis og innbyrðis með þeim hóp sem í kringum alla þessa vinnu safnast saman og eins þá hópa sem eru að myndast í kringum sem nú eru starfandi og munu þið sjá mikla breytingu sem á eftir að eiga sér stað í þeim hópum og sem síðan á eftir að sameinast einum stórum hópi sem mun vera starfandi hér á þessu landi, sömu hlutir eru að gerast í öðrum löndum og smá saman mun myndast tenging á milli þessara hópa og munu þeir leiða manninn inn á þá viskubraut sem síðan leiðir af sér þá orku sem opnar inn á þann fróðleik sem grafinn er í jörðu, sem geymt hefur verið neðanjarðar og í ýmsum byggingum sem nú þegar hafa ekki verið afhjúpaðir.

Því nú er verið að opna inn á þennan fróðleik og þá visku sem áður var og upphefja í hærri orku en nokkurn tímann hefur verið hér á jörðinni.

Það sem fram fer hér í þessu herbergi, í herberginu ykkar og í svipuðum aðstæðum víða um heim er aðeins upphafið að því sem eftir á að koma.

Og ætla ég að kveðja ykkur með þessum orðum, þau hefur mælt Greifinn af Saint German sem biður frið og kærleikann að ríkja með ykkur hið efra sem hið neðra hið innra sem hið ytra.